Tyrkland og Egyptaland

Þessi einstaka ferð leiðir þig í gegnum tvo stórbrotna menningarheima – frá iðandi mannlífi Istanbúl til fornar dýrðar Egyptalands. Við heimsækjum söguleg kennileiti, njótum stórbrotinnar náttúru og upplifum heillandi menningu þessara tveggja landa.

Dagur 1

Fö. 5. sept. 2025

Beint flug frá Keflavík til Istanbúl með Icelandair

Brottför kl. 15:25 – Lending kl. 23:55
Gisting í 3 nætur á 4⭐️ hóteli, Radisson Hotel President Old Town Istanbul (M)

Dagur 2

Lau. 6. sept. 2025 

Valfrjáls sex tíma gönguferð

🎉 Hápunktar: Hagia Sophia, Bláa moskan, Basilísku vatnsgeymslurnar, Grand Bazaar
🏨 Gisting á 4⭐️ hóteli, Radisson Hotel President Old Town Istanbul (M)
 

Dagur 3

Sun. 7. sept. 2025 

Frjáls dagur í Istanbúl – Frelsi til að njóta

🏨 Gisting á 4⭐️ hóteli, Radisson Hotel President Old Town Istanbul (M)

Dagur 4

Mán. 8. sept. 2025 

Flug med Egypt Airlines frá Istanbúl til Kairo

Brottför kl. 18:35 – Lending kl. 20:55
 
Ahlan wa Sahlan / Velkomin til Kaíró.
 
Enskumælandi fararstjóri tekur á móti okkur og aðstoðar við vegabréfsáritun og segir frá tilhögun næstu daga. Rútuferð á hótelið. 
 
🏨 Gisting á 5⭐️ hóteli, Kempinski Nile Hotel – (M)

Dagur 5

Þri. 9. sept. 2025 

Píramýdarnir í Giza, Sphinxinn og Egypska safnið

Við heimsækjum pýramídana í Gíza og Sfinxinn, leyndardóma sem hafa vakið forvitni heimsins öldum saman.  Við göngum inn í stóra píramýdann og fáum aðgang að galleríinu og konunglegu grafhýsi Keopsar. Einnig ökum við upp á hásléttuna
 
Við hölum áfram ferð okkar og heimsækjum hið fræga Egypska safn. Safnið er eitt tærsta safn veraldar og varðveitir merkar fornminjar frá Egyptalandi hinu forna, þar á meðal gripi sem fundust í gröf Tútankamons. Í safninu eru líka margar múmíur af frægum konungum. Þar á meðal eru múmíur Ramsesar 3., Seneferu og Hatsepsút drottningar.
 
🏨 Gisting á 5⭐️ hóteli, Kempinski Nile Hotel – (M)

Dagur 6

Mið. 10. SEPT. 2025 

Flug til Lúxor –  Karnak og Lúxor-hofin

Við fljúgum til Lúxor að morgni og okkur verður fylgt á hótelið þar sem við náum að hvílast stuttlega fyrir atburði dagsins.

Við skoðum Karnak og Lúxor hofrústirnar sem eru frá tíma Egyptalands hins forna. Upphaf hofbygginga á þessum stað má rekja til valdatíma Senúsret 1. á tíma Miðríkisins (1971-1926 f.Kr.). Byggingu svæðisins lauk að mestu á tíma 18. konungsættarinnar, en yngstu byggingarnar eru frá 30. konungsættinni.

🛳️ Gisting á 5⭐️ hóteli, – Sofitel Pavillon Winter Hotel (M)

Dagur 7

Fi. 11. SEPT. 2025 

Konungadalurinn, Deir el Bahari & Dalur aðalsmanna

Fyrsta stopp dagsins er Konungadalurinn, þar sem við munum heimsækja nokkrar af konunglegum grafhýsum Egyptalands. Aðeins 10 til 12 grafhýsi eru opin í einu, þar sem þau eru skipt upp til varðveislu og endurbóta. Miði í Konungadalinn er innifalinn og veitir aðgang að þremur grafhýsum að eigin vali.

Við munum einnig skoða grafhýsi Tutankhamons.

Eftir heimsókn í Konungadalinn verður farið í minningarmusteri Hatshepsut drottningar í Deir el Bahari, eina musterið í Egyptalandi sem er byggt í stöllum. Musterið stendur í náttúrulegum hringleikahúsformuðum klettum og rís tignarlega upp úr eyðimerkursandinum. Þetta stórfenglega hof hefur mikilfenglegar stallaðar brekkur og rúmgóð garðhýsi.  Hofin eru skreytt fallegum veggmyndum.

Við endum daginn í Dal aðalsmanna.

Við skoðum Memnon risastytturnar, og virðum fyrir okkur fornleifauppgröft við hof Amenhotep III.

Möguleiki er á ferð í loftbelg fyrir þau ykkar sem það vilja. Verð ca. 100€.
 
🏨 Gisting á 5⭐️ hóteli, – Sofitel Pavillon Winter Hotel (M)

Valfrjáls upplifun í Lúxor

Horfðu til himins!
 
Möguleiki er á ferð í loftbelg fyrir þau ykkar sem það vilja.

Við hefjum flug fyrir sólarupprás og fylgjumst með dögun yfir Þebönsku hæðunum og Níl.

Flugleiðin ræðst algjörlega af vindi, sem gerir hverja ferð einstaka. Ferðin tekur um 30–35 mínútur. Verð 110€.

Dagur 8

Fös. 12. SEPT. 2025 

Við höldum um borð í Dahabiya-bátinn okkar  í Esna

Sigling til El Kab & Quessia – Austurbakki og Vesturbakki

Við ökum til Esna, um 50 km suður af Lúxor, þar sem við göngum um borð í Dahabiya-bát.  Framundan er 4 daga sigling á Níl, frá Esna til Aswan.

Við heimsækjum hofið í Esna, þar sem við skoðum helgistaðinn og njótum stuttrar göngu um líflega markaði í bænum.

Við siglum til El Kab, (áður Nekheb), og skoðum leifar mustera og grafhýsi sem eru hoggin beint inn í klettana.

Eftir heimsóknina verður haldið áfram meðfram Níl þar til komið er að litilli eyju, þar sem báturinn leggst við akkeri yfir nóttina.

Kvöldverður verður borinn fram annaðhvort um borð í fjótabátnum eða á kyrrlátum bakka Nílar.

🛳️ Fyrsta gistnóttin um borð í Dahabiya – fullt fæði og síðdegiste.

Dahabiya-báturinn er okkar!

Þessi einstaki bátur er sérpantaður fyrir okkar ferð og eingöngu ætlaður ferðahópnum okkar. Hámark farþega er 15 manns + hópstjóri!

Hvað er eiginlega Dahabiya-bátur?

Dahabiya-bátur er hefðbundinn, glæsilegur seglbátur sem var upphaflega notaður af egypsku yfirstéttinni á 19. öld til að ferðast upp og niður Níl. Nafnið „Dahabiya“ kemur úr arabísku orðinu „dahab“, sem þýðir „gull“ og vísar til þess lúxus sem bátarnir þóttu standa fyrir á sínum tíma.

Gullöld siglinga á Níl endurvakin

Dahabiya báturinn okkar er Miriam, öll hönnun er  innblásin af gullöld ferðalaga á Níl. Nákvæm eftirmynd af 19. aldar Dahabiya. Hér er því bæði um að ræða lúxus- og menningarlega  upplifun.

Þilfarið er yfirbyggt og innheldur rúmgóða setustofu og borðstofu. Antík-lampar og ljósakrónur lýsa upp þilfarið og stólar, sófar og legubekkir skapa afslappað andrúmsloft.

Við slökum á og njótum töfrandi útsýnis undir hvítum seglum bátsins.

Inni í skipinu er rúmgóð og björt setustofa. Setustofan skiptist í tvennt; önnur hliðin er útbúin þægilegum sófum og stólum, á meðan hin er með borðstofuborði og bókasafni sem inniheldur bækur um Egyptaland og Níl.

Miriam er full-loftkæld og hver káeta og svíta er með eigin loftkælingu og hitastillingum, þannig að þú getur lagað hitastigið að eigin óskum.

Af hverju er valið að sigla á Dahabiya bát í þessari ferð?

Að ferðast með Dahabiya-bát er bæði einstök og skemmtileg leið til að upplifa siglingu á Níl. Ferðin býður upp á blöndu af sögulegum sjarma og nútíma þægindum, langt frá ys og þys fjöldaferðamennsku. Þetta gerir alla upplifun dýpri, bæði í tengslum við menningu, landslag og sögu Egyptalands.

Youtube hreyfimyndirnar sýna upplifanir úr áþekkum ferðum.

Dagur 9

Lau. 13. SEPT. 2025 

Sigling til Edfu & Wadi el Shat

Við siglum til Edfu og heimsækjum Hórusarhof, eitt best varðveitta musteri Egyptalands.

Eftir heimsóknina heldur ferðin áfram eftir Níl, með viðkomu í litlum þorpum og stöðum inni í eyðimörkinni. Hér er einstakt tækifæri á að skoða ósnortna nátturu og lifnaðarhætti í Egyptalandi.

Báturinn mun leggjast við akkeri við litla eyju fyrir nóttina. Kokkurinn okkar mun útbúa ekta egypskan kvöldverð, sem verður borinn fram á fallegum stað við bakka Nílar.

🛳️  Önnur gistinóttin um borð í Dahabiya – fullt fæði og síðdegiste.

Dagur 10

Sun. 14. SEPT. 2025 

Sigling til Gebel el Silsila, Kom Ombo & Maniha

Siglt verður til Gebel el Silsila, þar sem þú munt kanna fornar sandsteinsnámur og klettaskorin hof sem reist voru á tímum Horemhebs, Seti I, Ramses II og Merenptah.

Ferðin heldur áfram upp eftir Níl til tvíbura-hofsins í Kom Ombo, sem er tileinkað Haroeris og Sobek, krókódílaguðinum.

Við siglum til eyjarinnar Maniha, þar sem Dahabiya mun leggjast við akkeri yfir nóttina.

Kvöldverður verður borinn fram annaðhvort um borð í Dahabiya eða á friðsælum bakka Nílar.

🛳️ Þriðja nóttin um borð í Dahabiya – fullt fæði og síðdegiste.

Dagur 11

Má. 15. SEPT. 2025 

Sigling til Daraw og El Koubania, Aswan

Siglt verður til Daraw, þar við förum í gönguferð um þorpið. Við heimsækjum kameldýramarkaðinn og staðarmarkaðina í Daraw. Daraw var eitt sinn síðasta stopp á hinni frægu 40 daga eyðimerkurleið milli Súdan og Egyptalands.

Eftir heimsóknina heldur siglingin áfram til núbíska þorpsins El Koubania rétt við Aswan.

🛳️ Fjórða og síðasta nóttin um borð í Dahabiya – fullt fæði og síðdegiste

Dagur 12

Þri. 16. SEPT. 2025 

Flug tilbaka til Istanbúl

Flug frá Aswan – Kairo med Egypt Air

Brottför kl. 06:00 – Lending kl. 07:20

Flug frá Kairo – Istanbúl með Egypt Air

Brottför kl. 10:40 – Lending kl. 13:00
 
Frjáls dagur í Istanbúl – Tækifæri til að kanna meira eða njóta valfrjálsra viðburða.
 
🏨 Gisting á 4⭐️ hóteli, Titanic City Taksim (M)

Dagur 13

Mið. 17. SEPT. 2025 

Síðasti Dagur í  Istanbúl

Valfrjáls sex tíma gönguferð með staðkunnum enskumælandi leiðsögumanni.
Við förum í gönguferð um líflegustu götur borgarinnar, tökum ferju yfir Bosphorus-sundið og könnum hinn notalega Üsküdar-hverfi.
🎉 Hápunktar: Taksim-torg, Galata-turninn, ferja yfir Bosphorus, kryddmarkaður
🏨 Gisting á 4⭐️ hóteli, Titanic City Taksim – (M)

Dagur 14

Fi. 18. SEPT. 2025 

Heimflug með Icelandair frá Istanbúl til Keflavíkur

Brottför kl. 07:05 – Lending kl. 10:00

Innifalið

🌟 3 nætur á 4⭐️ hóteli í Istanbul með morgunverði
🌟 2 nætur á 5⭐️ hóteli í Kairó með morgunverði
🌟 3 nætur á 5⭐️ hóteli í Luxor með morgunverði
🌟 3 nætur um borð í Dahabiya með fullu fæði
🌟 2 nætur á 4⭐️ hóteli í Istanbul með morgunverði
🌟 Allir flugmiðar á milli áfangastaða
🌟 Allur flutningur til og frá flugvöllum og um Egyptaland
🌟 Aðgangur Stóra Píramýdanum, Egypska safninu, mm.
🌟 Enskumælandi staðarleiðsögumenn og íslenskur hópstjóri með í för
🌟 Vatnsflaska í öllum ferðum í Egyptalandi
 
Grípum nú tækifærið og njótum þessa tveggja landa í sömu ferð!
 

Valfrjálsar upplifanir

💥 Um sex tíma gönguferð um gamla bæinn í Istanbul með staðkunnum enskumælandi leiðsögumanni.
💥 Ferð á úlfalda við pýramídana
💥 Fjórhjólaferð við pýramídana
💥 Loftbelgsferð yfir Luxor
 

Ekki innifalið

✓ Þær máltíðir sem ekki eru taldar upp í innifalið,
drykkjarföng og persónuleg útgjöld.
✓ Þjórfé fyrir erlenda fararstjórann og rútubílstjóra.
✓ Farangursþjónusta á hótelum.
✓ Forfalla- og ferðatryggingar.

Skýringar

(M) er morgun-, (H) er hádegis- og (K) er kvöldverður
 
• Lítill hópur (15 farþegar + hópstjóri).
 
Hafið samband í síma 830 0800 eða sendið tölvupóst  á bjarni.meyer@viaworld.travel til að fá frekari upplýsingar.
 

Vegabréfsáritun

Íslendingar þurfa vegabréfsáritun til að heimsækja Egyptaland. Áritunin er auðveld í framkvæmd og er afgreidd við komu á flugvellinum, þar sem við veitum aðstoð. Vegabréfsáritun er innifalin í verðinu.
 
 
via World ApS er með danskt ferðaskrifstofuleyfi og meðlimur í Rejsegarantifonden.

Bólusetningar

Smitsjúkdómar eru mismunandi eftir löndum og heimsálfum. Bólusetningar fara eftir hvað þú ert að fara að gera og hvert þú ert að fara. Einnig eru smitsjúkdómar mismunandi eftir árum og tímabilum og í raun síbreytanlegir. 

Hafðu í huga að fara í  bólusetningar nokkrum vikum áður en ferðalagið hefst.  Hafið samband við ferðavernd eða heilsugæslu með góðum fyrirvara, ekki seinna en 3 mánuðum fyrir brottför. Þar mun fagfólk aðstoða þig og veita þér ráðgjöf er varðar hvaða bólusetning mun henta þér hverju sinni. Þetta er sérstaklega mikilvægt vegna þess að sumar sprautur þarf að endurtaka. Hins vegar eru sumar sprautur sem endast í tugi ára. 

Algengir sjúkdómar sem mælt er með að bólusetja sig fyrir eru til dæmis stífkrampi, heilahimnubólga og lifrarbólga A og B. Einnig er þekkt að taka malaríulyf á svæðum þar sem hún er virk. 

Förum varlega í að gefa öðrum ferðalöngum ráð er varðar bólusetningar eða vörn gegn smitsjúkdómum (t.d malaríu). Ástæðan er sú að ekki gildir það sama um alla og þó þú hafir þurft eitthvað ákveðið gæti önnur manneskja þurft öðruvísi meðferð.

Lækni eða ferðavernd svara öllum spurningum varðandi bólusetningar og heilsuvernd.

Why Choose via World for Your Group Tour?

At via World, we specialize in creating unforgettable, tailor-made group tours to Iceland for groups of 10 or more. Whether you’re planning a corporate retreat, a club excursion, or a special trip with friends and family, we ensure your journey is customized to your specific needs and preferences. 

  • Fully Customized Itineraries: We design your trip from start to finish, incorporating your interests—whether it’s exploring Turkey’s rich history, Egypt’s iconic landmarks, or indulging in unique cultural and culinary experiences.
  • Expert Guidance:While we may be new to organizing tours in Turkey and Egypt, we collaborate with highly competent and reliable local tour operators. Their deep knowledge and expertise ensure that every detail of your trip is handled professionally, delivering an exceptional experience.
  • Member of Rejsegarantifonden (The Danish Travel Guarantee Fund): As a member of Rejsegarantifonden, your trip is financially protected. This Danish government-backed fund ensures that your payments are secure, offering you peace of mind. In the unlikely event of insolvency, you are guaranteed a refund or assistance with repatriation, providing you with full financial security.

Let Us Take Care of the Details

Planning a group tour can be complex, but we’re here to simplify the process. We take care of everything, including:

  • Entry requirements: We handle visa information, travel documents, and any specific regulations related to your group’s visit to Turkey or Egypt.
  • A detailed itinerary: We create a comprehensive plan that balances sightseeing, activities, and free time, ensuring a well-rounded experience tailored to your group’s preferences.
  • Accommodation arrangements: We select comfortable accommodations that suit your group’s needs, whether you’re looking for modern hotels, charming boutique options, or more unique lodging experiences.
  • Unique experiences: From exploring Turkey’s rich history and breathtaking landscapes to experiencing Egypt’s iconic monuments and vibrant culture, we collaborate with expert local operators to curate memorable activities and ensure your group leaves with unforgettable memories.
  • Transportation logistics:

    We coordinate all your transport needs, from airport transfers to comfortable travel between Turkey’s or Egypt’s iconic landmarks, ensuring every detail is covered for a seamless journey.

    Let us handle the logistics while you focus on enjoying an extraordinary group adventure!

Scroll to Top